Réttindamál
Höfundarréttur liggur alfarið hjá höfundunum sjálfum. Forynjan áskilur sér útgáfurétt til að halda innsendu efni á vef sínum um ókomna tíð en höfundum er frjálst að gefa það út annars staðar. Að sama skapi setur Forynjan ekki kröfu um að innsent efni sé áður óbirt. Sem stendur er Forynjan alfarið rekin af hugsjónastarfi en framtíðardraumar ritstjóra snúa að því að geta greitt öllum listamönnum laun fyrir verk sín. Frekari framtíðardraumar snúa einnig að bókarútgáfu á völdum verkum í safnriti þegar þar að kemur og verður þá samið sérstaklega við höfunda.
Svartími
Forynjan kemur út óreglulega og útgáfustefnan er einföld: þegar nóg efni er til staðar, sleppum við tölublaði lausu. Við leitumst þó við að svara öllum fyrirspurnum innan mánaðar. Ef ekkert hefur heyrst úr fylgsnum Forynjunnar eftir sex vikur er í góðu lagi að senda fyrirspurn. Berist ekki svar eftir það má leiða líkum að því að ritstjórar hafi sökkt sér of djúpt í forboðin fræði og muni ekki snúa aftur heilir til skógar.
Efnistök
Forynjan er griðastaður fyrir alls kyns furðuskrif – fantasíur, vísindaskáldskap, hrylling, og allt þar á milli og fyrir utan – svo fremi sem þau séu á íslensku. Forynjan er fyrst og fremst hugsuð fyrir smásögur, en einnig má senda inn ljóð, greinar (ekki ritdóma), og örsögur. Efni skal vera á læsilegu formi, annað hvort sem .doc eða .pdf, og þak á orðafjölda eru 10.000 orð. Ritstjórar eru opnir fyrir öllu mögulegu sem grasserað hefur og stökkbreyst ofan í skúffu og höfundar telja að tímabært sé að hleypa út í heiminn. Forynjan tekur þó ekki á móti efni sem hefur orðið til með aðstoð gervigreindar.

SENDIÐ OKKUR EFNI!
Ef þú ert enn að lesa þetta er líklega kominn tími til að láta vaða og dúndra inn sögu. Sendið okkur allt það skrítnasta sem ykkur dettur í hug og hjálpið Forynjunni að vaxa og dafna!
Efni má senda á forynjantimarit hjá gmail.com og í meginmáli bréfsins skal tilgreina nafn verks, nafn höfundar, og orðafjölda. Ritstjórarnir bíða ávallt sársoltnir eftir næsta skammti.