Kæru furðufuglar,
Okkur er sönn ánægja að kynna til leiks fyrsta tölublað Forynjunnar – tímarits um íslenzkar furðusögur! Þessi hugmynd hefur gerjast lengi í hugum okkar beggja og byggir að hluta til á reynslu okkar úr íslensku furðusagnasenunni en ekki síður á mislukkuðum tilraunum til að senda sögur út í erlend tímarit. Á þeim vettvangi varð okkar helsti sigur álitlegt safn höfnunarbréfa en samhliða því fengum við ágæta innsýn í gang og verkferli rafrænna tímarita sem snúa að smásögum – reynsla sem kveikti þá hugmynd að láta á það reyna að stofnsetja álíka blað á íslenskri tungu.
Tímarit hafa verið stoð og stytta tegundabókmennta frá því að aðgreining hófst á milli fagurbókmennta og annarra bókmenntahefða á seinni hluta nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu. Tímarit á borð við Argosy, Weird Tales og Amazing Stories brutu blað – bókstaflega – í útgáfu á fantasíum, furðusögum, hryllingi, og vísindaskáldskap og á síðum þessara pölp-blaða (eða svo við notum gott og gilt íslenskt orð: sorprita) varð til vettvangur fyrir höfunda til að gera tilraunir með formið og stigu margir mikilvægustu höfundar geirans sín fyrstu skref hjá slíkum blöðum langt frameftir síðustu öld.
Við sækjum innblástur til þeirra forvera okkar og tökum jafnframt ofan fyrir öllum þeim sem hafa staðið í því ströggli að gefa út og bera kyndil furðubókmennta hér á landi. Við vonum að íslenskir lesendur jafnt sem höfundar muni taka þessu framtaki okkar með opnum hug og hjálpi okkur að halda lífi í Forynjunni um ókomin ár, í gegnum dystópíska daga sem framundan eru og alla leið inn í stjörnubjart sólarpönkið sem bíður handan sjóndeildarhrings.
Þetta fyrsta tölublað kemur út samhliða IceCon í maí 2026 og við þökkum þeim höfundum sem voru til í að gefa okkur efni til að koma Forynjunni á flot. Í þessu tölublaði bjóðum við upp á sögu eftir Emil Hjörvar Petersen sem gerist í sama sagnaheimi og Víghólar, Einar Leif Nielsen segir okkur frá undarlegum atburðum á samsæriskenningaráðstefnu, og Gunnar Theodór Eggertsson, annar ritstjóra Forynjunnar, skrifar um myrkar hliðar íslensku jólasveinanna. Einnig er hér að finna þýdda sögu eftir Mary Robinette Kowal, þar sem tröll herja á vinnusvæði í Straumsvík, hressandi skessuljóð eftir Þórunni Valdimarsdóttur, og loks þjóðsögu til að tengja við þjóðararfinn, en ætlunin er að láta eina slíka fylgja í hverju blaði. Við þökkum sérstaklega hirðlistamanninum Halli Karli Hinrikssyni fyrir að túlka Forynjuna myndrænt með sínum einstaka stíl og gera fyrir okkur bæði lógó og letur.
Við erum enn að átta okkur á formi og umfangi útgáfunnar en treystum á að þið lesendur sem eruð samferða okkur í furðunni lúrið á alls kyns efni sem muni fá að prýða rafrænar síður Forynjunnar í fjölmörgum framtíðarblöðum og hlökkum til samfylgdarinnar.
Thule fhtagn!
Gunnar Theodór Eggertsson og Júlíus Árnason Kaaber, ritstjórar